Nú hefur verið staðfest að Alexöndruróló fer í framkvæmd á næsta ári! Þúsund þakkir öll sem eitt fyrir stuðninginn ❤️ Mikið spennufall hérna megin og mörg tár en fyrst og fremst þakklæti ❤️❤️❤️ hverfidmitt.is/hugmyndir/HM...
Hverfið mitt er lýðræðisverkefni hjá Reykjavíkurborg þar sem íbúar senda inn hugmyndir að verkefnum sem þau vilja sjá verða að veruleika í sínu hverfi.
Hverfið mitt kosningin hálfnuð og komin 1048 atkvæði fyrir hugmyndirnar í Laugardal. Og stór auka bónus að vera loksins búin að finna fólkið mitt hér á nýja forritinu. Svo mikið gott í hjartað ❤️ hverfidmitt.is
Ég er ekki með marga vini hér á Bláhimni ennþá en prufa að setja þetta hér inn þrátt fyrir það ❤️ Alexöndruróló er róló í Vogabyggð til minningar um dóttur mína Alexöndru Eldey og er nú í kosningu í verkefninu Hverfið mitt hjá Reykjavíkurborg. Innilega þakklát fyrir atkvæði, deilingar og stuðning ❤️
Veit ekki hver þarf að heyra þetta en það er komið nýtt Masterball Research í Pokemon Go
Topp hlutir sem bráðvantar á heimilið mitt skv. mér sjálfri Steinatromlur, laser engraver, laser skeri, fleiri 3d prentarar, resin 3d prentari, claw machine og gróðurhús. Gróðurhús er normalt er það ekki? 😂🙈