Hver stelur af barnaleiði? Förum í kirkjugarðinn á nokkra daga fresti. Í dag sjáum við að það er búið að stela skrautsteinum af leiðinu hjá Alexöndru og Ísaki. Hjartaskornir agat steinar sem standa fyrir hin börnin okkar þrjú sem létust sem fóstur. Grátbiðjum þann sem stal steinunum að skila þeim❤️
Það voru teknir svipaðir steinar af leiði frænda míns, kom í ljós að það voru krakkar, mamma eins þeirra fann þá í fórum þeirra og skilaði þeim eftir að hafa séð þá auglýsta
Uppfært: Fengum staðfest í kvöld að börn tóku þessa hluti og höfðu ekki gert sér grein fyrir tilfinningalegu gildi þeirra. Öllu hefur nú verið skilað á leiðið. Þökkum skjót viðbrögð viðkomandi fjölskyldna og erum þakklát að hlutirnir hafi fundist og séu komnir á sinn stað hjá börnunum okkar aftur ❤️