6 ára dóttir mín, sturluð af sykri og spenningi horfði á 2023 fjara út á skjánum og 2024 birtast. Sagði svo stórmóðguð og vonsvikin: ,,ugh, þetta eru bara einhverjar tölur og sprengjur, ÖMURLEGT nýtt ár!”
Að vera heima með eins árs lasið barn leiðir eðlilega af sér að vera með heila mandarínu ofan í ískaffinu sem er ískaffi af því þið vitið.
Eftir því sem ég eldist er ég sturlaðri yfir því hvað efni í fötum eru ógeðsleg. Ég meina, hart glimmer og pólýester og eitthvað ógeð. Hvaða fjandans feðraveldi ætlast til að við klæðum okkur í óþægileg föt. Gamla brjáluð. Ég held ég ætli aldrei aftur í óþægileg föt.
Ég er miður mín yfir elsku dýrunum sem urðu eftir í Grindavík 💔😞
Elsku Víðir🩷
Ég skil ekki hvernig það er að gerast að fólki og börnum er bara slátrað. Ég er svo máttlaus yfir þessu og finnst ég nákvæmlega ekkert getað gert. Á svona tímum væri ég til í að eiga ríkisstjórn sem gæti beitt sér gegn þessum hryllingi. Bara hvers vegna myndu þau EKKI gera það? 💔
(,”) <3 (“,) svona var rómantíkin á MSN í den krakkar mínir. Allt svarthvítt og bara á fimmtudögum eða eitthvað.
Vita einhver hér hvað theory of relative deprivation er á íslensku?
Stundum er bara eitthvað kósí við að horfa með öðru auganu á eitthvað sorp. Þess vegna er ég að horfa á nýjustu seríu af virgin river.