Þegar flugstjórinn endar kynningarræðuna á “love you, i mean it”
Highly sensitive (hyper sensitive?) people, eruð þið í einhverri hjálplegri facebookgrúppu? Eða með einhver hjálpleg tips annað en loop?
Um leið og fréttir bárust af stunguárásinni voru ansi mörg sem stukku á að gerandinn hlyti að vera innflytjandi. Bæði brotaþolar og gerandi eru Íslendingar, en það var hins vegar innflytjandi sem skipti sköpum við endurlífgun hjá þeirri sem slasaðist mest. Just putting it out there.
Hér á landi er maður frá Palestínu sem býður brottvísunar. Í Gaza beið konan hans með tvö ung börn eftir að hann fyndi þeim öruggt skjól. Nýlega kom upp bruni í tjaldbúðunum sem þau bjuggu í og konan lést. Hann á því tvö börn, 4 ára og 1,5 árs sem eru EIN á Gaza 😭😭😭
Þegar barnið mitt meiðir sig í höfðinu segist hún hafa meitt sig í hárinu. Ég ætla aldrei að leiðrétta það.
Hæ hó dilli dó 🎶
Mig vantar platform eins og forritið var í gamladaga sem útrás fyrir athyglissýkina í mér. Þetta er ekki eins. Insta er ekki eins. Ojæja
Hvernig er erfiðara að velja gleraugu en tattú?
Stundum þegar ég er að rífa mig niður fyrir allskonsr minni ég mig á að við eignuðumst 4 börn á 16 mánuðum og þau eru öll í mjög góðum málum. Hvað get ég samt notað þetta lengi sem afsökun fyrir að beila á ræktinni? Vera endalaust lengi að klára mastersgráðuna? Borða súkkulaði sem millimál?
Ég var að klína tannkremi undir nefið á mér í von um að það væri skárra en lyktin. HJÆLP